3. apríl 2024

Bjarg byggir leiguíbúðir á Hellu

Hella.png

Fyrsta skóflustunga við Lyngöldu 4 á Hellu var tekin í dag, 3. apríl þar sem byggðar verða fimm 4ra herbergja íbúðir í raðhúsi á einni hæð. Um er að ræða sérbýli með litlum garði og allar íbúðir með tveimur bílastæðum. Allar íbúðirnar eru 4ra herbergja (3 svefnherbergi). Reiknað er með að íbúðirnar verði tilbúnar í byrjun janúar 2025. Opnað verður fyrir umsóknir í maí 2024.

Verktaki er SG hús á Selfossi.

Sjá hér frétt á vef Rangárþing Ytra

Á myndinni taka fulltrúar Bjargs, SG húsa og Rangárþings ytra fyrstu skóflustungurnar að húsinu.