4. október 2021
Ársfundur Bjargs haldinn 19. október 2021
Ársfundur Bjargs verður haldinn þriðjudaginn 19. október kl. 13 að Grettisgötu 89
Fulltrúaráð og leigutakar eiga rétt á að sitja ársfund. Þá er fulltrúum frá stofnaðilum, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, og þeim sveitarfélögum þar sem stofnunin á hús í rekstri boðið til áheyrnar
Eftirtalin mál verða tekin til umfjöllunar á ársfundi:
- Skýrsla stjórnar um starf stofnunarinnar á starfsárinu.
- Framlagning samþykkts ársreiknings.
- Kynning á skipun stjórnar.
- Önnur mál.