26. júlí 2024

Þúsundasta leiguíbúð Bjargs afhent

1000_1.jpg

Áróra Kristín Hólmfríðardóttir fékk í dag af­henta lykla að íbúð nr. 1000 sem fer í leigu á veg­um Bjargs íbúðafé­lags. Íbúðin er við Brekknaás í Árbæ, Reykjavík.

Dagurinn í dag markar því ákveðin tímamót. Þá eru í dag eru 5 ár síðan fyrsta íbúð félagsins var afhent í Móavegi í Reykjavík. 

140 íbúðir eru nú í hönnunarferli og/eða byggingu hjá Bjargi og 859 íbúðir eru í undirbúningi.