7. febrúar 2020
Upphaf framkvæmda í Þorlákshöfn

mynd: dfs.is/gpp
Fyrsta skóflustunga Bjargs íbúðafélags var tekin í Sambyggð14, Þorlákshöfn í gær, en þar mun rísa 12 íbúða, tvílyft fjölbýlishús.
Um er að ræða svokölluð "kubbahús", vistvænar- og endingagóðar timburbyggingar.
Verktaki er SG hús og arkitekt er Svava Jóns slf.
Reiknað er með að upphaf leigu verði 1. október 2020.
Sjá nánar hér um íbúðirnar.
