Akureyri, Gudmannshagi
Byggingin er fjöleignarhús. Að litlum hluta tveggja hæða með stigahúsi en aðallega þriggja hæða með lyftu og stigahúsi. Í húsinu er 31 íbúð. Upphaf leigu var 1. nóvember 2020.
Gældýrahald er leyft í hluta íbúðanna.
Stúdóíbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 0
- Stærð íbúða: 25,8m² og 26,4m²
- Fjöldi íbúða: 4
Stúdíó íbúðirnar eru 25,8 m² og 26,4 m² og skiptast í alrými með eldhúskrók og baðherbergi. Geymsluskápur er innan íbúðar og í íbúðinni er fataskápur.
Þá er einn geymsluskápur í sameign, stærð: B:60 cm., D:80 cm., H:200 cm.
Hér má sjá myndband úr stúdíóíbúð í Gudmannshaga (25,8 m²)
Hér má sjá 360° myndir teknar úr stúdíóíbúð í Gudmannshaga (25,8 m²)
2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 46,8 og 47,9 m²
- Fjöldi íbúða: 8
Tveggja herbergja íbúðirnar eru ýmist 46,8 eða 47,9 m² og skiptast þær í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í svefnherbergi.
Þá er einn geymsluskápur í sameign sem tilheyrir hverri íbúð, stærð: B:60 cm., D:80 cm., H:200 cm.
Hér má sjá myndband úr 2ja herbergja íbúð í Gudmannshaga ( 46,8 fm.)
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 2ja herbergja íbúð í Gudmannshaga ( 46,8 fm.)
3ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 2
- Stærð íbúða: 66,9 m²
- Fjöldi íbúða: 12
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 66,9 m². Í þeim er anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Þá er einn geymsluskápur í sameign sem tilheyrir hverri íbúð, stærð: B:60 cm., D:80 cm., H:200 cm.
Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja búð í Gudmannshaga ( 66,6 fm.)
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 3ja herbergja búð í Gudmannshaga ( 66,6 fm.)
4ra herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 3
- Stærð íbúða: 76,9 og 78,7 m²
- Fjöldi íbúða: 4
Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 76,9 og 78,7 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Þá er einn geymsluskápur í sameign sem tilheyrir hverri íbúð, stærð: B:60 cm., D:80 cm., H:200 cm.
Myndband úr 4ra herbergja íbúð við Gudamannashaga, 78,7 fm. (íbúðir 101 og 201)
Myndband úr 4ra herbergja íbúð við Gudamannashaga, 76,9 fm. (íbúðir 102 og 202)
5 herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 4
- Stærð íbúða: 90,1 m²
- Fjöldi íbúða: 3
5 herbergja íbúðirnar eru 90,1 m². Í þeim er anddyri, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. 5 herbergja íbúðirnar eru allar endaíbúðir. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Þá er einn geymsluskápur í sameign sem tilheyrir hverri íbúð, stærð: B:60 cm., D:80 cm., H:200 cm.
Hér má sjá myndband úr 5 herbergja íbúð í Gudmannshaga ( 90,1 m²)
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 5 herbergja búð í Gudmannshaga ( 90,1 m²)