
Akureyri, Langimói 1-3 - NÝTT
- 16 íbúðir í Langamóa 1-3 á Akureyri (Móahverfi). Fyrsta skóflustunga var tekin í apríl 2025 og áætlað að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar til leigu í júlí 2026. Áætluð verklok í nóvember 2026.
Um er að ræða tvö hús á tveimur hæðum. Þar má finna tveggja til fjögurra herbergja íbúðir.
Hér má sjá Langamóa á korti.
2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 52,0 m²
- Fjöldi íbúða: 8
Tveggja herbergja íbúðirnar eru 52,0 m² og skiptast þær í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymsluskápar eru innan íbúðar og fataskápur er í svefnherbergi. Sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á efri hæðum.
3ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 72,4 m²
- Fjöldi íbúða: 4
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 72,4 m² og skiptast þær í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi. Sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á efri hæðum.
4ra herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 3
- Stærð íbúða: 91,0 m²
- Fjöldi íbúða: 4
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 91,0 m² og skiptast þær í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi. Sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á efri hæðum.
Skipulag
Umhverfið
Móahverfi er nýtt íbúðahverfi í norðvesturhluta Akureyrar. Gert ráð fyrir að Síðuskóli verði skóli hverfisins og er leikskóli fyrirhugaður sem staðsettur verður vestan Síðuskóla. Hægt er að sjá frekari upplýsingar um hverfið hér.