Bátavogur 1 -7 (Gelgjutangi) við Vogabyggð í Reykjavík

Laus 1-2ja herbergja íbúð

Laus til umsókna; 1-2ja herbergja íbúð í Bátavogi 3

Áætlað leiguverð er kr. 155.830 á mánuðitengt vísitölu neysluverðs í janúar 2025. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið. Íbúðin er 47,7 m² og er á 2. hæð, svalir í suðvestur. Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsi, svefnrými (stúkað af með rennihurð) og baðherbergi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og í íbúðinni er fataskápur. Þá er sameignileg vagna- og hjólageymsla í húsinu. 

Upphaf leigu er 15. mars 2025

Hér má sjá  myndband úr sambærilegri íbúð í Bátavogi 3 (47,7 m²)

Hér má sjá 360° myndir úr sambærilegiri 1-2ja herbergja íbúð í Bátavogi 3  (47,7 m²)

Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið. 

Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er kr. 10.453 á mánuði. 

Sérstök athygli er vakin á því að hlutfall bílastæða við húsið er 0,5.

Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs fyrir 2. janúar 2025.

Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.mk. 16 mánuð, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 8.327.000/11.659.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.082.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.

Færa mig á umsóknarsíðu

Stúdóíbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 0
  • Stærð íbúða: 27,3m² og 40,9m²
  • Fjöldi íbúða: 2

Stúdíóíbúðirnar í Bátavogi eru tvær og eru 27,3m² og 40,9m². Þær skiptast í alrými með eldhúsi, svefnrými og baðherbergi. Geymslurými er í geymsluskápum í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Hér má sjá myndband úr stúdíóíbúðinni í Bátavogi 1 (40,9m²).

Hér má sjá myndband úr stúdíóíbúðinni í Bátavogi 7 (27,3 m²).

Hér má sjá 360° myndir úr stúdíóíbúðinni í Bátavogi 1 (40,9m²).

Hér má sjá 360° myndir úr stúdíóíbúðinni í Bátavogi 7 (27,3 m²).

 

1-2ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 1
  • Stærð íbúða: 40,4 m²-50,6 m²
  • Fjöldi íbúða: 26

1-2ja herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 40,4 m²-50,6 m². og skiptast þær í alrými með eldhúsi, svefnrými (stúkað af með rennihurð) og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Hér má sjá myndband úr 1-2 herbergja íbúð í Bátavogi 1 (50,6 m²).

Hér má sjá myndband úr 1-2 herbergja íbúð í Bátavogi 1 (47,3 m²).

Hér má sjá 360° myndir úr 1-2 herbergja íbúð í Bátavogi 1 (50,6 m²).

Hér má sjá 360° myndir úr 1-2 herbergja íbúð í Bátavogi 1 (47,3 m²).

Sjá fleiri myndir og myndbönd úr Bátavogi hér.

2ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 1
  • Stærð íbúða: 47,4m² - 53,7m²
  • Fjöldi íbúða: 10

Tveggja herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 47,4m² - 53,7m².  Í þeim er eitt svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Hér má sjá myndband úr 2ja herbergja íbúð í Bátavogi 1 (53,7 m²).

Hér má sjá 360°myndir úr 2ja herbergja íbúð í Bátavogi 1 (53,7 m²).

Sjá fleiri myndir og myndbönd úr Bátavogi hér.

2-3ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 2
  • Stærð íbúða: 56,2m² - 66,4m²
  • Fjöldi íbúða: 6

2ja til 3ja herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 56,2m² - 66,4m².  Í þeim er eitt aflokað svefnherbergi og annað sem er stúkað af með rennihurð, þar er eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Hér má sjá myndband úr 2ja-3ja herbergja íbúð í Bátavogi 7 (56,2 m²).

Hér má sjá 360° myndir úr 2ja-3ja herbergja íbúð í Bátavogi 7 (56,2 m²).

Sjá fleiri myndir og myndbönd úr Bátavogi hér.

3ja herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 2
  • Stærð íbúða: 62,4m² - 80,3m²
  • Fjöldi íbúða: 15

Þriggja herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 62,4m² - 80,3m².  Í þeim eru tvö svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Bátavogi 7 (80,3 m², stærri íbúðartýpa).

Hér má sjá myndband úr 3ja herbergja íbúð í Bátavogi 7 (74,4 m²).

Hér má sjá 360° myndir úr 3ja herbergja íbúð í Bátavogi 7 (80,3 m², stærri íbúðartýpa).

Hér má sjá 360° myndir úr 3ja herbergja íbúð í Bátavogi 7 (74,4 m²).

Sjá fleiri myndir og myndbönd úr Bátavogi hér.

3ja-4ra herbergja

  • Fjöldi svefnherbergja: 3
  • Stærð íbúða: 78,1m² - 81,8 m²
  • Fjöldi íbúða: 4

3ja - 4ra herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 78,1m² - 81,8 m².  Í þeim eru tvö aflokuð svefnherbergi og eitt sem er stúkað af með rennihurð, þar er eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Sjá fleiri myndir og myndbönd úr Bátavogi hér.

4ra herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 3
  • Stærð íbúða: 72,7m² - 83,0m²
  • Fjöldi íbúða: 7

4ra herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 72,7m² - 83,0m².  Í þeim eru þrjú svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur. 

Hér má sjá myndband úr 4ra herbergja íbúð í Bátavogi 1 (72,7 m²).

Hér má sjá 360° myndir úr 4ra herbergja íbúð í Bátavogi 1 (72,7 m²).

Hér má sjá myndband úr 4ra herbergja íbúð í Bátavogi 7 (83,0 m²).

Hér má sjá 360° myndir úr 4ra herbergja íbúð í Bátavogi 7 (83,0 m²).

Sjá fleiri myndir og myndbönd úr Bátavogi hér.

5 herbergja íbúð

  • Fjöldi svefnherbergja: 4
  • Stærð íbúða: 97,4-97,5m²
  • Fjöldi íbúða: 4

5 herbergja íbúðirnar í Bátavogi eru 97,4-97,5m² .  Í þeim eru fjögur svefnherbergi, eldhúskrókur og baðherbergi. Geymslurými eru bæði í skápum innan íbúðar og í kjallara og í íbúðinni er fataskápur.

5 herbergja íbúð í Bátavogi 5 (97,5 m²) - myndband tekið á framkvæmdatíma

3D myndir

Fyrir leigutaka í Bátavogi

Umhverfið

Um er að ræða nýtt og skemmtilegt íbúahverfi sunnan Kleppsmýrarvegar og austan Sæbrautar þar sem áður var atvinnu- og iðnaðarhverfi. Nálægð við nátturu er mikil þar sem Elliðárdalurinn er í göngufæri. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram sjávarsíðunni og upp í Elliðaárdal og niður í Fossvogsdal. Laugardalurinn er steinsnar frá og umhverfið býður upp á frábæra möguleika til útivistar. Þá er öll þjónusta innan seilingar.

Hér má sjá nánar um uppbyggingu hverfisins á vef Reykjavíkurborgar. 

Hugmynd arkitekta um hverfið (myndband)

Deiliskipulag Vogarbyggðar af vef Reykavíkurborgar