
Hallgerðargata í Reykjavík
80 íbúðir eru við Hallgerðargötu, Kirkjusandi í Reykjavík. Húsin eru 2ja og 3ja hæða.
Félagsbústaðir eiga og leigja út 20% íbúða í húsunum í Hallgerðargötu á móti Bjargi íbúðafélagi.
Gældýrahald er leyft í hluta íbúðanna. Sækja þarf um sérstaklega ef óskað er eftir íbúð sem heimilar gæludýr. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 40,3-42,8 m²
- Fjöldi íbúða: 21
Tveggja herbergja íbúðirnar eru 40,3 - 42,8 m² og skiptast þær í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymsluskápar eru í sameign og fataskápur er í svefnherbergi.
Myndbönd:
Hér má sjá myndband tekið úr dæmigerði 2ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 4 (nr. 106, 42,8 m²)
Hér má sjá myndband tekið úr dæmigerði 2ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 16 (nr. 107, 41,4 m²)
360° myndir:
Hér má sjá 360° myndir teknar úr dæmigerði 2ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 4 (nr. 106, 42,8 m²)
Hér má sjá 360° myndir teknar úr dæmigerði 2ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 16 (nr. 107, 41,4 m²)
3ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 2
- Stærð íbúða: 62,3-66,1 m²
- Fjöldi íbúða: 24
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 62,3-66,1 m² og skiptast þær í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymsluskápar eru í sameign og fataskápur er í svefnherbergi.
Myndbönd:
Hér má sjá myndband tekið úr 3ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 10 (nr. 104, 63,7 m²).
Hér má sjá myndband tekið úr 3ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 10 (nr. 205, 66,1 m²).
Hér má sjá myndband tekið úr 3ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 14 (nr. 204, 62,8 m²)
360° myndir:
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 3ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 10 (nr. 104, 63,7 m²).
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 3ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 10 (nr. 205, 66,1 m²).
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 3ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 10 (nr. 305, 66,1 m²).
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 3ja herbergja íbúð í Hallgerðargötu 14 (nr. 204, 62,8 m²)
4ra herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 3
- Stærð íbúða: 73,8-75,7 m²
- Fjöldi íbúða: 17
Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 73,8-75,7 m² og skiptast þær í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymsluskápar eru í sameign og fataskápur er í svefnherbergi.
Myndbönd:
Hér má sjá myndband tekið úr 4ra herbergja íbúð í Hallgerðargötu 2 (nr. 101, 75,5 m²)
Hér má sjá myndband tekið úr 4ra herbergja íbúð í Hallgerðargötu 14 (nr. 101, 75,7 m²)
360° myndir:
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 4ra herbergja íbúð í Hallgerðargötu 2 (nr. 201, 75,5 m²)
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 4ra herbergja íbúð í Hallgerðargötu 14 (nr. 101, 75,7 m²)
5 herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 4
- Stærð íbúða: 94,1 m²
- Fjöldi íbúða: 2
Fimm herbergja íbúðirnar eru 94,1 m² og skiptast þær í anddyri, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymsluskápar eru í sameign og fataskápur er í svefnherbergi.
Hér má sjá myndband tekið úr 5 herbergja íbúð við Hallgerðargötu 12 (nr. 206, 94,1 m²).
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 5 herbergja íbúð við Hallgerðagötu 12 (nr. 206, 94,1 m²).
Umhverfið
Útivistargildi svæðisins er ótvírætt með góðu aðgengi að strandlengjunni og Laugardal. Hallgerðargatan er í grennd við gömul og rótgróin hverf í Teigunum og Lækjunum. Stutt er í alla verslun og þjónustu, má þar t.d. nefna Laugardalslaug, Skautahöllina, Grasagarðinn, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, Safn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga og Sólheimabókasafn.