Hella, Lyngalda 4
Fimm 4ra herbergja íbúðir að Lyngöldu 4, Hellu. Um er að ræða sérbýli í raðhúsi á einni hæð. Lítill garður í suður fylgir hverri íbúð og allar íbúðir eru með tveimur bílastæðum. Allar íbúðirnar eru 4ra herbergja (3 svefnherbergi). Íbúðirnar voru tilbúnar í desember 2024.
- Verönd með skjólvegg milli íbúða garð megin
- Við hverja íbúð er 6,4 m² óupphituð útigeymsla í garði
- Tvö bílastæði eru á hverja íbúð
Gæludýrahald er heimilt í íbúðunum. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
Hér má sjá staðsetningu húsanna á korti.
4ra herbergja íbúðir
Íbúðirnar eru allar 96,8 m² + 6,4 m² útiskúr samtals 103,2 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og alrými með eldhúsi.
Fataskápur (3 skápar) í hjónaherbergi en ekki eru fataskápar í öðrum herbergjum. Í íbúðunum er þvottahús. Geymsluskápar eru í þvottahúsi og þá eru einnig skápar í anddyri. Gólfhiti er í allri íbúðinni og handklæðaofn á baði.
360° myndir
Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 4ra herbergja endaíbúð (93,6 m²).
Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 4ra herbergja íbúð (miðjuíbúð) (92,2 m²).
Myndbönd
Hér má sjá myndband úr svipaðri endaíbúð (93,6 m²).
Hér má sjá myndband úr svipaðri miðjuíbúð (92,2 m²).