
Móavegur í Reykjavík
124 íbúðir við Móaveg 2-12 í Grafarvogi (við Spöngina) í Reykjavík. Fyrsta skóflustunga var tekin í febrúar 2018 og voru fyrstu íbúðir afhentar nýjum leigutökum í júní 2019. Verklok voru í janúar 2020.
Um er að ræða 2ja - 5 herbergja íbúðir. Gæludýrahald er heimilt í hluta íbúða á jarðhæðum en sækja þarf um þær íbúðir sérstaklega. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald. Félagsbústaðir eiga og leigja út 20% íbúða í húsunum að Móavegi 2-12 á móti Bjargi íbúðafélagi. Athygli er vakin á að bílastæðin við húsið eru 0,75 per íbúð.
Hér má sjá Móaveg 2-12 á korti.
3ja herbergja íbúð laus til leigu í Móavegi 6 (nr. 305)
Upphaf leigu er 15. maí 2025
Íbúðin er 75,4 m² og er á 3.hæð í lyftuhúsi. Svalir snúa inn í garðinn.
Gæludýr eru ekki heimiluð í íbúðinni.
Áætlað leiguverð er kr. 220.266 á mánuði, tengt mánaðarlega vísitölu neysluverðs í febrúar 2025. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið.
Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er kr. 14.348 á mánuði.
Aðgangur er að sameiginlegu þvottahúsi með þvottavélum og þurrkurum. Bílakjallari er í húsinu.
Hér má sjá myndband tekið úr dæmigerðri 3ja herbergja íbúð í Móavegi (athugið að íbúðirnar eru mismunandi að stærð og skipulagi).
Hér má sjá 360° myndir tekið úr dæmigerðri 3ja herbergja íbúð í Móavegi (athugið að íbúðirnar eru mismunandi að stærð og skipulagi).
Stutt er í almenningssamgöngur og verslunarkjarnann Spöngina þar sem meðal annars er að finna lágvöruverðsverslun, heilsugæslu, sjúkraþjálfun, matvöruverslun, bakarí, hárgreiðslustofu, blómabúð, veitingastaði, fiskbúð, dýrabúð og aðrar sérverslanir.
Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.mk. 16 mánuð, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 8.327.000/11.659.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.082.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.
Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs fyrir 24. febrúar 2025.
2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 50-65 m²
- Fjöldi íbúða: 46
Tveggja herbergja íbúðirnar eru 50,7 - 55,1 m² og skiptast í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og fataskápur er í svefnherbergi.
Hér má sjá myndband tekið úr dæmigerðri 2ja herbergja íbúð í Móavegi.
Hér má sjá 360° myndir teknar úr dæmigerðri 2ja herbergja íbúð í Móavegi.
3ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 2
- Stærð íbúða: 65-78 m²
- Fjöldi íbúða: 51
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 65 - 78 m². Í þeim er anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Hér má sjá myndband af dæmigerðri 3ja herbergja íbúð í Móavegi.
Hér má sjá 360° myndir teknar úr dæmigerðri 3ja herbergja íbúð í Móavegi.
4ra herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 3
- Stærð íbúða: 84,5-101,7 m²
- Fjöldi íbúða: 21
Fjögurra herbergja íbúðirnar eru frá 84,5 - 101,7 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Hér má sjá myndband tekið úr 4ra herbergja íbúð (86,8 m²) í Móavegi (athugið að íbúðir eru ólíkar að skipulagi).
5 herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 4
- Stærð íbúða: 97 m²
- Fjöldi íbúða: 6
Fimm herbergja íbúðirnar eru 97 m². Í þeim er anddyri, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er í skápum innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Umhverfið
Stutt er í almenningssamgöngur og verslunarkjarnann Spöngina þar sem meðal annars er að finna lágvöruverðsverslun, heilsugæslu, sjúkraþjálfun, matvöruverslun, bakarí, hárgreiðslustofu, blómabúð, veitingastaði, fiskbúð, dýrabúð og aðrar sérverslanir.
Það sem einkennir hverfið er mikil nánd við náttúruna. Þar ber helst að nefna svæði eins og Gufunesið, Grafarvoginn og ána Korpu. Hverfið markast einnig af langri og fallegri sjávarsíðu sem umlykur hverfið að stórum hluta. Íbúarnir nýta sér óspart þessar náttúruperlur til útivistar og íþróttaiðkunar.