
Reykjanesbær, Dalsbraut 1
4ra herbergja íbúð laus til leigu (nr. 308)
Upphaf leigu er 15. júní 2025
Íbúðin er 81,2 fm og er á 3. hæð (efstu hæð) í þessu þriggja hæða lyftuhúsi.
Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Svalir í suður. Geymsla í sameign, stærð 3 m². Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla er einnig á jarðhæð.
Áætlað leiguverð er kr. 257.086 á mánuði, tengt vístölu neysluverðs í febrúar 2025. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið.
Leigutaki greiðir auk þess sína eigin rafmagnsnotkun (af rafmagnsmæli íbúðar) hita, og eftir atvikum sameiginlega rekstrarkostnað raðhússins, í hlutfalli við stærð íbúðar (hlutir eins og þrif og umhirðahirða sameignar, þ.m.t. garðhirða og snjómokstur).
Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem er með lögheimili í Grindavík, hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.mk. 16 mánuð, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 8.327.000/11.659.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.082.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.
Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs.
Skipulag
- 18 íbúðir við Dalsbraut 1, Inni Njarðvík, 260 Reykjanesbær, fjórar 3ja herbergja, tólf 4ra herbergja og tvær 5 herbergja íbúðir. Íbúðirnar fóru í leigu 1. febrúar og 1. mars 2024.
Til að átta sig betur á íbúðunum er hér hlekkur á sambærilegt hús (Dalsbraut 2): https://www.dalsbraut.is/ Vakin er athygli á að íbúðr Bjargs eru ekki leigðar með húsgögnum.
Myndbönd úr íbúðum:
Myndband úr 3ja herbergja íbúð í Dalsbraut 1, Reykjanesbæ
Myndband úr 4ra herbergja íbúð í Dalsbraut 1, Reykjanesbæ
Myndband úr 5 herbergja íbúð í Dalsbraut 1, Reykjanesbæ
360°myndir
360 mynd úr 4ra herbergja íbúð Dalsbraut 1, Reykanesbæ
Um Dalsbraut 1
Um er að ræða 27 íbúða, 3ja hæða fjölbýlishús á þremur hæðum. Húsið er með tveimur lyftum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Kvarts steinn á borðum bæði í eldhúsi og baðherbergi. Bjart alrými með gólfsíðum gluggum. Suður og suðvestur svalir. Húsið stendur nálægt sjávarsíðunni og er glæsilegt sjávarútsýni af eftir hæðum. Öllum íbúðum fylgir sér geymsla og í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageysmsla.
Íbúðirnar í Dalsbraut voru keyptar og ætlaðar fyrir Grindvíkinga í takt við viljayfirlýsingu sem undirrituð var við stjórnvöld vegna hamfaranna á Reykjanesi.
Úthlutanir hjá Bjargi í tengslum við íbúðir keyptar fyrir íbúa Grindavíkur eru út frá eftirfarandi:
a) póstnúmeri 240
b) biðlistanúmeri
c) fjölskyldustærð
d) Uppfylltum ákveðnum skilyrðum, þau má finna hér: https://www.bjargibudafelag.is/leiga/skilyrdi-fyrir-uthlutun/
Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda sem er undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. er eiganda íbúðarinnar heimilt að leigja hana til leigjanda sem er yfir tekju- og eignamörkunum. Heimilt er að krefjast markaðsleigu. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til eins árs.
Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda frá Grindavík (aðila á lista Almannavarna vegna rýmingar í Grindavík) er heimilt að úthluta út frá almennum skilyrðum Bjargs varðandi úhlutun. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til 18 mánaða.