
Suðurnesjabær (Sandgerði), Bárusker 1
11 íbúðir í tveggja hæða húsi við Bárusker 1 í Suðurnesjabæ (Sandgerði).
Þar eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Fyrsta skóflustungan var tekin í júní 2023 og fóru fyrstu íbúðirnar í útleigu í febrúar 2025.
Gæludýr verða leyfð í hluta íbúðanna og merkja þarf sérstaklega við í umsókn ef sótt er um íbúð sem heimilar gæludýrahald. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
Hér má sjá Bárusker 1, Sandgerðisbæ á korti.
2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 54,0-54,1 m²
- Fjöldi íbúða: 5
Tveggja herbergja íbúðirnar eru 54,0 - 54,1 m² og skiptast þær í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er í sameign (1,42 m²), forstofuskápur í anddyri og fataskápur í svefnherbergi. Afgirtur sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á íbúðum á efri hæð.
Hér má sjá myndband tekið úr svipaðri 2ja herbergja íbúð í Grindavík.
Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 2ja herbergja íbúð í Grindavík.
3ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 2
- Stærð íbúða: 69,7 - 71,9 m²
- Fjöldi íbúða: 4
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 69,7 - 71,9 m² . Í þeim er anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi. Afgirtur sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á íbúðum á efri hæð.
Hér má sjá myndband tekið úr svipaðri 3ja herbergja íbúð í Grindavík.
Hér má sjá 360° myndir úr svipaðri 3ja herbergja íbúð í Grindavík.
4ra herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 3
- Stærð íbúða: 91,9 m²
- Fjöldi íbúða: 2
Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 91,9 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi. Afgirtur sérafnotareitur á jarðhæðum og svalir á íbúðum á efri hæð.
Hér má sjá myndband tekið úr sambærilegri 4ra herbergja íbúð í Grindavík.
Hér má sjá 360° myndir úr sambærilegri 4ra herbergja íbúð í Grindavík.
Skipulag
- Bárusker_aðaluppdrættir
- Afstöðumynd_þakmynd_Bárusker 1.png
- Kortavefsjá_Bárusker 1.png
- Skerjahverfi.pdf
- Bárusker 1_yfirlit íbúða.pdf
Hér má sjá deiliskipulag svæðisins.