
Þorlákshöfn, Sambyggð 14b
12 leiguíbúðir Bjargs í tveggja hæða fjölbýlishúsi við Sambyggð 14b í Þorlákshöfn.
Íbúðirnar voru tilbúnar 1. október 2020. Gæludýrahald er heimilt í hluta íbúða á jarðhæðum en sækja þarf um þær íbúðir sérstaklega. Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.
Hér má sjá Sambyggð á korti.
Stúdíóíbúð
- Fjöldi svefnherbergja: 0
- Stærð íbúða: 36,5 m²
- Fjöldi íbúða: 1
2ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 1
- Stærð íbúða: 48,9 m²
- Fjöldi íbúða: 5
Tveggja herbergja íbúðirnar eru allar 48,9 m² og skiptast þær í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymsluskápar eru innan íbúðar og fataskápur er í svefnherbergi.
Hér má sjá myndband tekið úr 2ja herbergja íbúð í Sambyggð 14b.
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 2ja herbergja íbúð í Sambyggð 14b.
3ja herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 2
- Stærð íbúða: 69,3-70 m²
- Fjöldi íbúða: 4
Þriggja herbergja íbúðirnar eru 69,3 - 70m². Í þeim er anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými er innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Hér má sjá myndband tekið úr 3ja herbergja íbúð í Sambyggð 14b.
Hér má sjá myndband tekið úr 3ja herbergja íbúð í Sambyggð 14b.
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 3ja herbergja íbúð í Sambyggð 14b.
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 3ja herbergja íbúð í Sambyggð 14b.
4ra herbergja íbúðir
- Fjöldi svefnherbergja: 5
- Stærð íbúða: 89,3 m²
- Fjöldi íbúða: 2
Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 89,3 m². Í þeim er anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi.
Hér má sjá myndband tekið úr 4ra herbergja íbúð í Sambyggð 14b.
Hér má sjá 360° myndir teknar úr 4ra herbergja íbúð í Sambyggð 14b.
3D myndir
Skipulag
Umhverfið
Innviðir sveitarfélagsins eru mjög sterkir og alla helstu þjónustu er að finna í Þorlákshöfn. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í íþróttamannvirkjum og bæði leik- og grunnskóli eru í hæsta gæðaflokki. Stuttar vegalengdir á milli staða gera börnum kleift að ganga örugg í skóla og tómstundastarf. Góðar og greiðar samgöngur eru frá sveitarfélaginu til allra átta. Höfuðborgarsvæðið er í seilingarfjarlægð en það tekur aðeins 30 mínútur að keyra til Reykjavíkur frá Þorlákshöfn.