Vogar, Keilisholt 1

4ra herbergja íbúð laus til leigu (nr. 207)

Upphaf leigu er 15. apríl 2025.

Íbúðin er 95,2 m² og er á 2.hæð (nr. 207). 

Áætlað leiguverð á mánuði er kr. 262.621, tengt mánaðarlega í vísitölu neysluverðs í febrúar 2025Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið. 

Leigutaki greiðir auk leigu sína eigin rafmagnsnotkun (af rafmagnsmæli íbúðar) hita, og eftir atvikum sameiginlega rekstrarkostnað raðhússins, í hlutfalli við stærð íbúðar (hlutir eins og þrif og umhirðahirða sameignar, þ.m.t. garðhirða og snjómokstur).

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Geymsla á jarðhæð og sameiginleg vagna- og hjólageymsla er einnig á jarðhæð. Eldhús skilast með ísskáp, uppþvottavél, eldunarofni og helluborði. 

Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem er með lögheimili í Grindavík, hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi og uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuði, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka og eignamarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 8.327.000/11.659.000 (einstaklingur/hjón) auk kr. 2.082.000 fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu, skv. síðasta skattaframtali. Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 8.999.000 kr.

Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að haka við staðsetningu og íbúð á "mínum síðum" á heimasíðu Bjargs fyrir 24. febrúar 2025. 

Færa mig á umsóknarsíðu

Um Keilisholt 1

Gæludýr eru leyfð í hluta íbúðanna og merkja þarf sérstaklega við í umsókn ef sótt er um íbúð sem heimilar gæludýrahald. Íbúðir Bjargs eru ekki leigðar með húsgögnum. 

Íbúðirnar í Keilisholti voru keyptar og ætlaðar fyrir Grindvíkinga í takt við viljayfirlýsingu sem undirrituð var við stjórnvöld vegna hamfaranna á Reykjanesi.

Úthlutanir hjá Bjargi í tengslum við íbúðir keyptar fyrir íbúa Grindavíkur eru því út frá a) póstnúmeri 240, b) biðlistanúmeri, c) fjölskyldustærð og d) að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, þau má finna hér: https://www.bjargibudafelag.is/leiga/skilyrdi-fyrir-uthlutun/

Úthlutanir hjá Bjargi í tengslum við íbúðir keyptar fyrir íbúa Grindavíkur eru út frá eftirfarandi:
a) póstnúmeri 240
b) biðlistanúmeri
c) fjölskyldustærð
d) Uppfylltum ákveðnum skilyrðum, þau má finna hér: https://www.bjargibudafelag.is/leiga/skilyrdi-fyrir-uthlutun/

Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda sem er undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. er eiganda íbúðarinnar heimilt að leigja hana til leigjanda sem er yfir tekju- og eignamörkunum. Heimilt er að krefjast markaðsleigu. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til eins árs.

Ef ekki tekst að leigja almenna íbúð til leigjanda frá Grindavík (aðila á lista Almannavarna vegna rýmingar í Grindavík) er heimilt að úthluta út frá almennum skilyrðum Bjargs varðandi úhlutun.  Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til 18 mánaða.

Skipulag

Innréttingar í öllum íbúðum eru HTH innréttingar frá Ormsson.

Rafmagnstæki eru af gerðinni AEG. Eldhús skilast með ísskáp, uppþvottavél og eldunarofni og helluborði.

Gólfefni á íbúðum eru vandað harðparket ásamt hljóðdúk, en flísar eru á gólfi í votrýmum.

Smelltu hér til að skoða síðu Keilisholts

Fyrir leigutaka í Keilisholti 1