Leiga
Úthlutun geta þeir einir hlotið sem hafa verið virkir á og fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuð, sl. 24 mánuði, miðað við úthlutun.
Skráningum á biðlista er raðað upp í þeirri röð sem þær berast og virkjast þegar greiðsla félagsgjalds hefur verið innt af hendi. Undantekning á uppröðun var þó í upphafi þannig að skráningar til og með 31. júlí 2018 fóru í pott og var umsækjendum raðað í númeraröð með útdrætti. Við úthlutun ræður lægsta númer á biðlista að teknu tilliti til forgangs, sbr. gr. 4 í úthlutunarreglum Bjargs.
Í lögunum eru skilgreind tekju-og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu, í dag eru þau eftirfarandi:
8.686.000 kr. ári, fyrir skatta (eða 723.833 kr. á mánuði) fyrir hvern einstakling.
12.161.000 kr. á ári, fyrir skatta (eða 1.013.417 kr. á mánuði) fyrir hjón og sambúðarfólk.
2.172.000 kr. á ári, fyrir skatta (eða 181.000 kr. á mánuði) fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu.
Heildareign heimilis má ekki vera hærri en 9.386.000 kr.
Greiðslubyrði leigu skal að jafnaði ekki vera umfram 25%-30% af heildartekjum leigutaka að teknu tilliti til húsnæðisbóta, barnabóta og meðlags.
Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára við skráningu á biðlista.
Til að geta sótt um íbúð þarf umsækjandi að vera með staðfesta skráningu á biðlista hjá Bjargi.
Að jafnaði er 80% íbúða úthlutað til félagsmanna ASÍ og 20% til félagsmanna BSRB.
Í hvert sinn sem íbúðir eru lausar til umsóknar sendir Bjarg póst á alla á biðlista með nánari upplýsingum. Ef áhugi er á tiltekinni staðsetningu þarf umsækjandi að senda inn umsókn.