Gjaldskrá
Gjaldskrá umsækjenda/nýrra leigutaka:
• Árlegt félagsgjald er 1.500 kr. Gjaldið er til að standa straum af kostnaði í tengslum við skráningu, staðfesta þarf skráningu á biðlista með greiðslu á 12 mánaða fresti.
• Staðfestingargjald vegna úthlutunar er 30.000 kr. Gjaldið er greitt innan sjö daga frá úthlutun og er óafturkræft ef umsækjandi hættir við en gengur annars upp í tryggingarféð.
• Samhliða undirritun leigusamnings þarf leigutaki að standa skil á tryggingarfé sem er ígildi þriggja mánaða leigu. Tryggingarféð stendur til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi, þ.e. fyrir leigugreiðslum, kostnaði sem fellur til við skil á íbúð og skaðabótum vegna tjóns á hinu leigða sem leigjandi kann að bera ábyrgð á samkvæmt ákvæðum húsaleigulaga. Leigutaki getur einnig valið að kaupa tryggingu í gegnum viðurkenndan aðila. Trygging þarf að liggja fyrir við undirritun leigusamnings. Tryggingarfé skal skilað í lok leigutíma ef engin athugasemd er gerð við skilin.
Gjaldskrá leigutaka:
• Aukaafrit af leigusamningi: 1.000 kr.
• Þjónustugjald framkvæmdasviðs Bjargs: 13.640 kr. á klst. með vsk. + akstur kr. 5.580 með vsk. Útkall er að lágmarki 2 klst. Gjald er tekið vegna viðgerða og viðhalds sem leigutakar eiga að jafnaði að sjá um sjálfir.
• Aukaúttekt vegna skila á íbúð: 13.640 kr. á klst. með vsk. + akstur kr. 5.580 með vsk.