Úthlutunarreglur Bjargs íbúðafélags
-
1. Skilyrði fyrir úthlutun á leiguíbúð Bjargs íbúðafélags:
1.1. Úthlutun geta þeir einir hlotið sem hafa verið virkir á vinnumarkaði og fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB í a.m.k. 16 mánuð, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun. Fullgildir félagsmenn sem eru tímabundið frá vinnu, í allt að 12 mánuði, vegna fæðingarorlofs eða veikinda halda réttindum sínum. Námsmenn, sem jafnframt eru virkir á vinnumarkaði en sem eiga sjálfstæðan rétt til þess að sækja um íbúðir í húsnæðisfélögum námsmanna eftir þeim reglum sem þar gilda, eiga ekki jafnframt rétt hjá Bjargi meðan á námi stendur sbr. þó gr. 4.10.
1.2. Úthlutun geta þeir einir hlotið sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum við upphaf leigu, skilgreindum skv. lögum nr. 52/2016 um almennar íbúðir og Reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir. Til að hægt sé að gera ráð fyrir sambúðaraðila í umsókn þurfa aðilar að vera giftir eða í skráðri sambúð.
1.3. Greiðslubyrði leigu skal að jafnaði ekki fara umfram 25%-30% af heildartekjum leigutaka að teknu tilliti til húsnæðisbóta, barnabóta og meðlags.
1.4. Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára við skráningu á biðlista.
1.5. Til að geta sótt um íbúð þarf umsækjandi að vera með staðfesta skráningu á biðlista hjá Bjargi.
2. Skráning á biðlista og umsókn
2.1. Við skráningu á biðlista þarf umsækjandi að greiða árlegt félagsgjald skv. gjaldskrá. Skráningu á biðlista þarf umsækjandi að staðfesta árlega með því að greiða félagsgjald samkvæmt gjaldskrá. Gjöld þessi eru óafturkræf. Staða umsækjanda á biðlista er fyrst virk þegar búið er að greiða félagsgjaldið og frá þeim tíma sem það er greitt. Sé félagsgjald ekki greitt árlega fellur umsækjandi af biðlista.
2.2. Skráning á biðlista á sér stað með rafrænum hætti á heimasíðu félagsins, www.bjargibudafelag.is, í gegnum „mínar síður“.
2.3. Farið skal með allar upplýsingar vegna skráningar á biðlista og þær upplýsingar sem aflað er vegna úthlutunar sem trúnaðarmál og hvílir þagnarskylda á starfsmönnum Bjargs og úrskurðarnefnd skv. 8. gr.
2.4. Umsækjendur bera ábyrgð á að þeir uppfylli öll almenn skilyrði fyrir úthlutun skv. 1. gr. Umsækjendur bera einnig ábyrgð á því að veita og skrá réttar og fullnægjandi upplýsingar. Bjarg tekur ekki ábyrgð á ef rangt netfang, póstfang eða símanúmer hefur verið skráð og getur slíkt þýtt að skráning á biðlista falli niður og umsækjandi detti út af biðlista. Bjarg leitar ekki staðfestingar á atriðum eins og tekju- eða eignamörkum, stéttarfélagsaðild eða skráningu í Þjóðskrá fyrr en við úthlutun. Í umsókn skal taka fram ef umsækjandi óskar eftir að halda gæludýr eða óskar eftir að vera í húsi þar sem gæludýrahald er bannað.
2.5. Tveir biðlistar eru hjá félaginu: Annars vegar vegna nýrra leigutaka og hins vegar fyrir þá sem þegar eru leigutakar í félaginu en vilja flutning (flutningslisti). Til að geta skráð sig á flutningslista og óska eftir flutningi þarf leigutaki að hafa búið í húsnæði hjá Bjargi að lágmarki í tvö ár og uppfylla öll almenn skilyrði um úthlutun skv. 1. gr.
2.6. Lægsta númer á báðum listum ræður úthlutun að teknu tilliti til herbergjafjölda og forgangs skv. gr. 4. Nýjum umsækjendum og íbúum sem óska eftir flutningi er úthlutað íbúðum í hlutföllum fjórir á móti einum. Sjá nánar gr. 4.8.
2.7. Skráningum á biðlista er raðað upp í þeirri röð sem þær berast og virkjast þegar greiðsla félagsgjalds hefur verið innt af hendi.
2.8. Undantekning á uppröðun er þó í upphafi þannig að skráningar til og með 31. júlí 2018 fara í pott og verður umsækjendum raðað í númeraröð með útdrætti.
2.9. Skráning á biðlista ein og sér nægir ekki til að fá úthlutað íbúð, heldur þarf umsækjandi að sækja um ákveðna íbúðartegund þegar félagið auglýsir íbúðir lausar til umsóknar.
2.10. Umsókn um íbúð
Þegar íbúðir eru lausar til umsóknar fá umsækjendur á biðlistum tölvupóst með nánari upplýsingum, stærð, staðsetningu o.fl. Umsókn á sér stað með rafrænum hætti á heimasíðu félagsins, www.bjargibudafelag.is, í gegnum „mínar síður“. Þar heimilar umsækjandi Bjargi, komi til úthlutunar, að sækja nauðsynlegar upplýsingar til Þjóðskrár, stéttarfélags og RSK. Umsækjandi ber ábyrgð á að hann uppfylli öll almenn skilyrði skv. 1. gr. og að sú íbúðartegund sem sótt er um henti hans fjölskyldustærð, sbr. 5. gr. um fjölda íbúa pr. íbúð.2.11. Ekki er heimilt að framselja sæti/stöðu á biðlista. Undantekning er við andlát umsækjanda en þá má eftirlifandi maki taka stöðu hans á biðlista enda hafi þau verið gift eða í staðfestri sambúð í a.m.k. 2 síðustu árin fyrir andlátið. Þá kann skilnaður að veita heimild til að framselja sæti/stöðu á biðlista til maka að því gefnu að maki uppfylli almennar reglur um úthlutun sbr. gr. 1 og báðir aðilar undirriti framsalið.
2.12. Öll samskipti umsækjanda og Bjargs fara fram með rafrænum hætti á það netfang sem umsækjandi skráir. Hafi umsækjandi athugasemdir við mat Bjargs skal hann skila skriflegri athugasemd til úrskurðarnefndar Bjargs urskurdarnefnd@bjargibudafelag.is, innan sjö daga frá því hann fær staðfestingu á mati frá Bjargi eða frá því að úthlutun var gerð.
2.13. Skráningu er hafnað í neðangreindum tilfellum og skal umsækjandi upplýstur um ástæðu höfnunar:
2.13.1. Heimilt er að hafna skráningu ef hún er talin ófullnægjandi á einhvern hátt eða ef upplýsingar sem þar koma fram reynast rangar.
2.13.2. Ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði 1. gr.
2.13.3. Ef umsækjandi er í vanskilum við Bjarg.
2.13.4. Heimilt er að hafna skráningu hafi umsækjanda verið vísað úr leiguhúsnæði Bjargs vegna brota á reglum.
3. Úthlutun
3.1. Þegar til stendur að úthluta umsækjanda íbúð staðfestir Bjarg að umsækjandi uppfylli öll skilyrði um úthlutun, samanber 1. gr. um almenn skilyrði fyrir úthlutun og 5. gr. um viðmið um fjölda íbúa pr. íbúð. Komi í ljós við skoðun að umsækjandi uppfylli í reynd ekki öll skilyrði fyrir úthlutun, skal hann upplýstur um þá stöðu og fær ekki úthlutun. Hafi umsækjandi athugasemdir við mat Bjargs skal hann skila skriflegri athugasemd til úrskurðarnefndar Bjargs, urskurdarnefnd@bjargibudafelag.is, innan sjö daga frá því að matið liggur fyrir, ásamt öllum nauðsynlegum gögnum máli sínu til stuðnings.
3.2. Við úthlutun íbúða velja umsækjendur íbúð í sínum stærðarflokki í þeirri röð sem þeir eru skráðir á biðlista.
3.3. Hafi umsækjandi fengið úthlutað húsnæði skal hann staðfesta samþykki sitt innan sjö daga frá úthlutun og greiða staðfestingargjald, kr. 30.000. Staðfestingargjald er óafturkræft ef umsækjandi hættir við en gengur annars upp í tryggingarfé skv. leigusamningi. Hafi staðfestingargjald ekki verið greitt innan tilskilins frests fellur úthlutunin niður en umsækjandi heldur þrátt fyrir það sínu sæti á biðlista.
3.4. Komi í ljós eftir að leigusamningur er undirritaður að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt við skráningu eða með fylgiskjölum með henni reynast rangar og umsækjanda verið eða mátt vera kunnugt um að svo var, fellur úthlutunin úr gildi og er leigutaka skylt að kröfu Bjargs að rýma húsnæðið innan 30 daga frá því að honum berst skrifleg áskorun þar um, hafi hann veitt íbúð viðtöku.
3.5. Þrátt fyrir að efsti maður á lista hafni tilboði um úthlutun heldur hann sínum stað á biðlista.
4. Úthlutanir á íbúðum skulu verða samkvæmt neðangreindum reglum.
4.1. Að jafnaði er 80% íbúða úthlutað til félagsmanna ASÍ og 20% til félagsmanna BSRB. Félagsmenn, sem átt hafa lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi/félagssvæði í eitt ár eða lengur, hafa forgang að 50% íbúða í viðkomandi sveitarfélagi.
4.2. Stúdíóíbúðir og tveggja herbergja íbúðir. Barnlaus pör og einstaklingar geta fengið úthlutun á stúdíóíbúð eða tveggja herbergja íbúð.
4.3. Fjölskylduíbúðir (3ja – 5 herbergja íbúðir). Umsækjendur með barn/börn geta fengið úthlutað 3ja 5 herbergja íbúð. Ef barn er væntanlegt og því ekki skráð í Þjóðskrá, skal umsækjandi skila þungunarvottorði til skrifstofu Bjargs.
Sjá nánar hér um tegund íbúða:
-
4.4. Umsóknum þar sem gert er ráð fyrir að fleiri en tveir séu í herbergi er hafnað, sbr. þó undantekningu í gr. 4.5.4.5. Umsækjendum með ung börn er heimilt, þrátt fyrir gr. 4.3 og gr.4.4, að sækja um minni íbúðir þar sem ekki er gert ráð fyrir að barn/börn hafi eigið herbergi. Hafa þarf þó í huga við slíka umsókn að þrátt fyrir að ákveðinn forgangur sé fyrir núverandi leigutaka um nýjar íbúðir þarf alltaf að reikna með töluverðum biðtíma til að fá stærri íbúð.
4.6. Foreldri með sameiginlegt forræði barns/barna þar sem lögheimili barns/barna er skráð hjá hinu foreldrinu, getur verið á biðlista fyrir fjölskylduíbúð. Skila þarf inn staðfestingu frá Sýslumannsembætti um sameiginlegt forræði. Að öðru leyti gilda upplýsingar frá Þjóðskrá við mat á fjölskyldustærð umsækjanda.
4.7. Miðað er við fjölda barna þegar íbúð er úthlutað, bæði er varðar forgang við úthlutun og stærð íbúðar sem úthlutað er. Þetta á þó ekki við þegar börn umsækjenda hafa náð 20 ára aldri. Börn yfir 20 ára sem sannanlega geta ekki búið ein sökum andlegrar eða líkamlegrar fötlunar eða sjúkdóma fá þó áfram forgang sem börn umsækjanda. Skila þarf inn staðfestu örorkumati frá Tryggingastofnun eða læknisvottorði sem sýnir fram á með sannanlegum hætti að barnið þurfi slíkan stuðning vegna framangreinds og ljóst sé að um viðvarandi ástand sé að ræða. Þá geta tveir einhleypir, fullorðnir einstaklingar í sömu fjölskyldu (þá systur, bræður, mæðgin, feðgin, mæðgur, feðgar) bæði verið leigutakar á leigusamningi og fengið úthlutað íbúð þar sem hvor aðili fær sitt herbergi. Skal í slíku tilfelli líta til tekna og eigna beggja aðila eins og um sambýlisaðila sé að ræða. Ef aldraðir foreldrar eru skráðir til lögheimilis með umsækjanda og halda heimili með honum skal litið til þeirrar skráningar með sama hætti og þegar börn eiga í hlut. Gera þarf grein fyrir því í umsókninni hvort tengingin sé við leigutaka eða maka og skila inn fæðingarvottorði þess sem tengingin er við.
4.8. Úthlutun af flutningslista skal fara fram með neðangreindum forgangi og fær flutningslisti fjórðu hverja íbúð sem úthlutað er.
4.8.1. Þeir sem eru í sama húsi, eru efstir á biðlista ef stærð íbúðar hentar.
4.8.2. Þeir sem eru í öðru húsi og vilja flutning vegna skilnaðar, sambúðarslita eða andláts.
4.8.3. Þeir sem eru í öðru húsi og vilja flutning.
4.9. Þeir umsækjendur sem ekki fá úthlutað eru áfram á biðlista.
4.10. Ef ekki tekst að leigja íbúð til umsækjanda sem er undir tekju- og eignamörkum er Bjargi heimilt að leigja til umsækjanda sem er yfir tekju- og eignamörkunum og skulu félagsmenn ASÍ og BSRB sem uppfylla að öðru leyti skilyrði 1. gr. ganga fyrir um leigu. Heimilt er að krefjast markaðsleigu. Slíkir leigusamningar skulu þó ekki vera til lengri tíma en til eins árs.
5. Leigusamningur og tryggingarfé
5.1. Ekki seinna en þremur mánuðum fyrir afhendingu íbúðar skal umsækjandi undirrita leigusamning sem skrifstofa Bjargs lætur honum í té og inniheldur nánari ákvæði um réttindi og skyldur leigutaka. Lyklar að húsnæði skulu einungis afhentir nýjum leigutökum gegn framvísun undirritaðs leigusamnings.
5.2. Tryggingarfé er ígildi þriggja mánaða leigu. Tryggingarféð stendur til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi, þ.e. fyrir leigugreiðslum, kostnaði sem fellur til við skil á íbúð og skaðabótum vegna tjóns á hinu leigða sem leigjandi kann að bera ábyrgð á samkvæmt ákvæðum húsaleigulaga. Bjarg varðveitir tryggingarfé í samræmi við ákvæði leigusamnings og laga nr. 36/1994. Leigutaki getur einnig valið að kaupa tryggingu í gegnum viðurkenndan aðila. Trygging skal liggja fyrir við undirritun leigusamnings. Tryggingarfé skal skilað eftir að úttekt hefur átt sér stað á húsnæðinu og lokauppgjör fer fram.
5.3. Leigusamningar eru bundnir við nöfn þeirra sem fá viðkomandi húsnæði úthlutað. Leigutökum er algerlega óheimilt að skipta eða semja um skipti á íbúðum innbyrðis.
5.4. Leigutaka er óheimilt að framleigja íbúðina eða hluta hennar nema með samþykki Bjargs. Framleiga er einungis heimil vegna sérstakra aðstæðna sem stjórn leggur mat á. Sýna þarf fram á með sannanlegum hætti að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða. Hámarks framleigutími er tvö ár og verður að vera eitt samfellt tímabil. Upphaflegur leigutaki ber áfram réttindi og skyldur samkvæmt lögum. Framleiga samkvæmt ákvæði þessu skapar framleigjanda ekki réttindi vegna íbúðar.
5.5. Rétt til búsetu í hinu leigða hafa aðeins þeir sem eru skráðir á leigusamningi og fjölskylda leigutaka.
6. Gæludýrahald
Ekki er heimilt að vera með gæludýr nema í íbúðum sem Bjarg hefur skilgreint fyrir gæludýrahald. Heimild miðast við eitt dýr á íbúð. Upplýsingar um íbúðir sem hafa heimild til gæludýrahalds munu koma fram í auglýsingu vegna úthlutunar. Hafa þarf í huga við slíka umsókn að þær íbúðir eru hlutfallslega fáar og má reikna með lengri biðtíma.
Leggja skal fram skráningu/leyfi á skráningarskyldum gæludýrum. Gæludýr skulu þannig haldin að ekki valdi hávaða, ónæði, óhollustu eða óþrifnaði. Leigutakar skuldbinda sig til að fara eftir reglugerðum og reglum viðeigandi ráðuneytis, hollustuverndar og viðkomandi sveitarfélags um dýrahald. Óheimilt er að vera með hundategundir sem eru taldar hættulegar eða óæskilegar að fenginni reynslu eða mati sérfróðra aðila, s.s. dýralæknis,hundaþjálfara eða hundaeftirlitsmanna. Sjá nánar hér.
7. Afhending á húsnæði
7.1. Afhending í upphafi leigu. Starfsfólk Bjargs skal afhenda leigutaka húsnæði á fyrsta degi leigutímabils og fer samhliða fram afhendingarúttekt. Bjarg áskilur sér heimild til að seinka afhendingu í allt að 15 daga vegna óviðráðanlegra aðstæðna og án sérstakra bóta en lækkar leigugjaldið sem seinkuninni nemur. Tilkynna skal leigutaka væntanlega seinkun á afhendingu svo fljótt sem auðið er. Afhendingartími er jafnan milli kl. 11 og 15.
7.2. Skil í lok leigu. Leigutaki skal skila húsnæði sínu hreingerðu og frágengnu ekki síðar en kl. 15.00 á skiladegi og samhliða fer fram skilaúttekt. Leigutaki skal vera viðstaddur úttekt. Geti leigutaki ekki verið viðstaddur úttekt skal hann skriflega tilnefna umboðsmann í sinn stað. Mæti hvorki leigutaki eða umboðsmaður við úttekt kunna skil að frestast á kostnað leigutaka. Dragi leigutaki skil húsnæðis fram yfir áður ákveðna tímasetningu skal hann greiða 3ja daga leigu fyrir hvern dag sem skilin dragast.
Skili leigutaki húsnæði illa þrifnu er notast við ræstingaþjónustu og greiðir leigutaki reikninginn, sem reiknast eftir fermetrafjölda íbúðar.
Bjarg innheimtir skilagjald í lok leigu skv. gjaldskrá.
Málningarvinna í leigulok er á kostnað leigutaka að teknu tilliti til notkunar. Uppgjör er gert við leigulok.
8. Úrskurðarnefnd
Úrskurðarnefnd skal starfa innan Bjargs, skipuð þremur fulltrúum, einum frá Bjargi, einum frá ASÍ og einum frá BSRB. Nefndin skal skera úr öllum ágreiningsmálum sem upp koma varðandi mat á skráningu á biðlista og úthlutanir og er niðurstaða nefndarinnar endanleg. Um störf úrskurðarnefndar gilda almennar reglur stjórnsýslulaga eftir því sem við á.
-
Þannig samþykkt í stjórn Bjargs 6.desember 2018.